2.7.2008 | 22:38
Alröng frétt, part II
Ungur þýskur námsmaður fékk að kynnast af eigin raun gagnsemi reykinga. Heinz Müller var staddur við heimili móður hans þar sem hann ætlaði að skutla henni á bingókvöld. Var sú gamla eitthvað lengi á leiðinni út þannig að Heinz stökk út og kveikti sér í vindling. Á meðan hann var að totta vindlinginn vildi ekki betur en svo að heljarinnar traktor með tengivagni og öllum græjum rann stjórnlaust á bílinn og endaði ofan á honum. Heinz sagði í samtali við fréttamann að móðir hans hefði í mörg ár reynt að fá hann til að hætta að reykja en nú í dag væri aðeins annað hljóð í gömlu. "Ef að ég væri ekki reykingarmaður þá væri ég dauður", sagði Heinz. Þess má geta að gamla konan fékk far með traktornum á bingókvöldið þar sem hún vann splunkunýjann BMW sem hún gaf syninum.
Hefði þessi frétt verið birt á mbl.is ef sönn væri ... Held ekki.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.