Færsluflokkur: Dægurmál

Ný og gömul smuga

Sú var tíðin í gamla daga að til var svæði á hafinu stóra sem hét því virðulega nafni "Smugan".  Þetta svæði er auðvitað ennþá til en þangað nennr ekki nokkur maður að fara lengur.  Kannski vegna þess að það er enginn fiskur þar.  Núna er það síldarsmugan sem virkar ...  Svona stundum.

Í smugunni máttu menn gera það sem þeim sýndist, eða það héldu menn í það minnsta og fóru eftir því í hvívetna.  Kannski það sé dautt svæði núna einmitt út af því ??

Vona nú að þessi nýja smuga verði vænni og langlífari en sú fyrrnefnda.  Sýnist á stuttri yfirferð að þarna séu ágætis pennar á ferðinni, en auðvitað er ekki komin nein reynsla á þetta ennþá.  Vonum hið besta, ekki vanþörf á þar sem það eru ekki svo margir eigendur af fjölmiðlum í dag.

En það er eitt sem stakk mig svolítið í augum þegar ég opnaði þessa síðu.  Er þetta ekki "alveg" sama útlit og á Eyjunni?  Held í það minnsta að útlitið sé nokkuð mikið stolið.  En það má auðvitað vel vera að því hafi  verið stolið með góðfúslegu leyfi án þess að ég viti það.

 Góðar stundir, kveðjur af hafinu stóra.

 


mbl.is smugan.is hefur göngu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meirihluti styður óvissu ...

Svolítiðmerkilegar þessar niðurstöður að rétt rúmlega helmingur vilji labba beint inn í EU ...  En kannski góðar fréttir fyrir stjórnvöld þar sem þá þarf líklegast ekki að spreða krónu í að semja ...  Göngum bara inn á morgun ekki málið !!

Svo eru 63% sem segja ... Jú EU gæti verið allt í lagi en ég vil fá að sjá hvað þeir bjóða fína samninga.  Flott mál og ég get alveg stutt það þótt ég haldi að það sé alls ekkert víst að ég kjósi aðild að þessu fyrirbæri.  Þó svo að það þýði að í stað þess að taka upp allar reglugerðir skilyrðistlaust í gegnum EES þá ...  tökum við upp allar reglugerðir nokkurnvegin skilyrðislaust í gegnum EU þar sem ég er ekkert viss um að reglugerðarbatterýið hlusti mikið á smáþjóðir með kjaft.  (Allavega í íslenskum fjölmiðlum)  En var þessi tala ekki í 70-80% bara um daginn ?  Þýðir þetta ekki að Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekkert að samþyggja vinsældartillöguna um að taka upp aðils á næsta flokksþingi??  Og þá Framsókn líka.  

Það væri samt gaman að sjá listana fyrir næstu kosningar ef báðir flokkar samþyggja og klofnast í framhaldinu.

Samfylking, Íslandshreyfing, Vinstri hægri, Sturlaði flokkurinn, Sjálfstæði EU, Sjálfstæði ÍS, Framsókn EU (með 2 þingmenn) og Framsókn ÍS.

Þá verða Samfylking og Vinstri græn í stjórn ...  Og séum við í smá vandræðum núna þá verðum við virkilega "fucked" þá.

Góðar stundir.  Ekki veitir af núna þegar tækifæri gefst til.


mbl.is Meirihluti styður ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípanafnanefnd

Enn og aftur eru komin ný og sniðug nöfn sem hægt er að nota til að lífga upp á tilveruna ...  Enda varla gaman ef allir hétu Jón og Gunna.  Sérstaklega ef ALLIR hétu einmitt "Jón og Gunna" ... algerlega óháð kyni.

 En nafnið Júní ...  Myndi það nafn ef það yrði nú notað, nafn á gaur eða gellu?

Gæti t.d. einhver gaur í komandi framtíð borið nafnið Ágúst Nóvember Júní ?? Gæti verið skondið ef viðkomandi ætti afmæli í Janúar t.d.

En svo hef ég oft verið að spá í því ...  Þessi nöfn sem eru samþykkt (og hin auðvitað líka) er þetta alvöru fólk út í bæ sem langar til að skíra krakkagemlingana sína þetta eru eru nefndarmenn á svona svakalega góðum hugmyndalyfjum og finna þetta upp með sjálfum sér og þræta svo um þetta um helgar.  Er það t.d. tilviljun að frétt um þetta málefni byrtist á Sunnudegi?  Var þá fundurinn ekki í gær?  Og kannski seinnipartinn og eitthvað fram á kvöld ??

 Þegar stórt er spurt ....

 

 


mbl.is Aðólf, Júní, Maríkó og Skugga samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fatlaður fótbolti

Alltaf er það sama vælið í öllum þessum köppum ....  Lady Alex, Wanker, Benites, Moning ho þegar hann var í bretaveldi.

Alltaf er það dómaranum, leikjafyrikomulaginu, verðinu á osti út úr búð o.s.v. að kenna að þeir vinni ekki hvern einasta leik.  

Var það ekki í fyrra sem Chelsea átti alltaf útileik eftir meistaradeildina ...  þar áður örugglega einhvert annað lið.  Annars má vel vera að leikjaröðunin sé "fötluð" ... (Á réttilega að vera orðað þannig að hin félögin hafi forskot eins og réttilega var bent á í einhverju blogginu).  Annars á ég virkilega erfitt með að vorkenna mönnum sem þiggja milljónir ofan á milljónir fyrir að leika sér í fótbolta.

 


mbl.is Ferguson ósáttur við leikjaniðurröðunina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk mótmæli, sóun á Húsavíkurjógúrt ?

Gat ekki betur séð en að þetta hafi verið Húsavíkurjógúrt sem lá á stéttinni.  Gæti þó verið að mér hafi missýnst.  Væri ekki mikið frekar að borða hana og grýta frekar einhverju frá MS þar sem það smakkast verr ???

Annars er nokkuð gaman að fylgjast með þessu öllu úr fjarska.  Skil samt ekki hvað verið er að ráðast á blessuðu lögregluna, varla á hún einhverja sök í þessu máli.  Nema þá að hún sé svona hrikalega ósvífin að vilja ekki að menn séu að maka út alþingiskofann ... Eða kannski mata út ...

Svo er bara að bíða og sjá hvort þetta skili einhverjum árangri, annað en hagnaði hjá eggjabændum.  Eitthvað segjir mér að þetta verði þaggað niður rétt eins og sturluðu mótmælin hjá trukkabílstjórunum ... Þótti nú ólýklegt annað á sínum tíma en að það skilaði einhverjum árangri, en raunin er heldur betri önnur.  Kannski þetta skili einverju, hver veit.

Kveðja úr sveitinni.

 


mbl.is Geir Jón: Lítið má út af bregða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg hreint magnaðir pólverjar

Mikið andskoti eru þessir Pólverjar laumulegir með fjárhagsaðstoðina sína.  Kl 12 að staðartíma vissi Geir ekki einu sinni af láninu.  Kannski hann hlusti ekki né lesi erlenda fjölmiðla og vissi þess vegna ekkert hvað væri að gerast á Íslandi ....  Trúi því sem trúa vill.  Held að þða sé algerlega óhætt að segja að ég geri það alls ekki.  Trúi varla orði sem þessi maður lætur út úr sér þessa dagana. 

En til hamingju Pólland með að vera til .... 

 


Nýjir tímar, svartir tímar

Fyrst Hamilton, nú Obama ...  Hvað næst ??

Studdi að vísu báða til sigurs þannig að ekki kvarta ég yfir þessum úrslitum.

 


Heldur meiri munur samkvæmt SKY að mér sýnist

Sýnist á fréttum SKY núna í kvöld að munurinn sé meira nær 8% en 7%.  Sem er auðvitað hið besta mál að mínu mati.  Held að Osama bin Laden ....  Meina Obama og Biden sé mun betra par (Ekki kærustupar þó) en næstum dauður karl og einhver stúlkukind sem ég veit ekki laveg hvað ég á ða halda um.

 Annars er það helst í fréttum að amma Obama hafi látist úr krabbameini nú í kvöld.  Votta ég fjölskyldu hans mína samúð.

Baráttukveðjur af skerinu, áfram Obama !!


mbl.is Obama með forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjónvarpsfréttum ekki sjónvarpað

Það má vel vera að ég sé að misskilja þetta eitthvað allhrikalega ...  En er ekki vaninn að sjónvarpa sjónvarpsfréttum?  Minnir nú að þegar ég hef hlustað á fréttirnar á Bylgjunni þá er alltaf talað um fréttastofu S2 OG Bylgjunar en ekki bara S2. 

Annars næ ég ekki S2 út á sjónum þannig að ég horfi voðalega sjaldan á þetta þannig að mér er í sjálfu sér alveg sama.  Fannst þetta bara eitthvað asnalega orðað.  

 

 


mbl.is Hádegisfréttir Stöðvar tvö ekki lengur í sjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég flautaði ekki.

Hef aldrei almennilega skilið svona mótmæli ...  Flautið til að mótmæla hávaða og annað slíktVerð að viðurkenna að ég veit nú ekki nákvæmlega hvar þessi blessaða brú er, en er einhver sem myndi heyra í mér ef ég lægi á flautunni eins og geðsjúkur?  Aðrir en samferðamenn mínir í umferðinni.  Annars held ég að það geti verið stórvarasamt að flauta að óþörfu á bílinn fyrir framan sig.  Gæti vel valdið algerlega óþarfa slysi ef viðkomandi hrekkur í kút.

Án þess að ég ætli að telja mig einhvern sérfræðing í mótmælum, þá hlýtur að vera hægt að finna einhverja hentugri leið.

Kær kveðja úr sveitinni.


mbl.is Ökumenn hvattir til að flauta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband